Hvað ef það skríður?!
18.05.2006 18:52:49 / Hildur

Neihh hvað haldiði...

...bloggandinn kom bara skyndilega yfir mig.

Hef svosem ekkert mikið að segja nema það að sumarið er loksins komið og óska ég öllum innilega til hamingju með það!:P

Já ég finn á mér að þetta á eftir að verða goott sumar, engin sérstök ástæða fyrir því svosem en ég bara hef það á tilfinningunni...

Planið í sumar er að njóta þess í botn að vera til í sambland við skítuga verkamannavinnu á lagernum hjá K.Karlssyni. (Ekkert slæm vinna samt fyrir utan það að neglurnar á manni brotna eins og þeim sé borgað fyrir það og hendurnar verða skítugar)

Helstu markmið sumarsins:

# Að minnsta kosti tvær skemmtilegar útilegur.
# Vonandi sumarbústaðarferðir
# Verða eins brún og mögulegt er á íslensku sumri.
# EYJAR 2006 BEIBÍ! Ásamt Únu, Lilju og Unni:haha:

oog já svo eitthvað meira skemmtilegt og óplanað...

En á öðrum nótum þá er Silvia Night vonandi að fara að meika það í Júróvisjón núna já bara eftir tvo tíma eða svo og ég sendi henni bara mínar bestu kveðjur, hef alveg ágætis trú á því að hún komist upp úr undankeppninni þó það séu ekki allir að ná spauginu...Kemur í ljós,kemur í ljós.

Held að þetta sé bara orðið ansi gott í bili og bið ykkur bara vel að lifa.

GLEÐILEGT SUMAR!;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 17:02:07 / Hildur

Spurning hvort að einhver kíki ennþá á þetta líflega blogg okkar...

..en ég ætla að gera eina örvæntingarfulla tilraun til að halda smá lífi í þessu og taka klukkið frá únu á hennar síðu til mín:D

Fjögur störf sem ég hef unnið yfir ævina:

1. Expert
2. Karl K. Karlsson
3. Unglingavinnan
4. Reynsla mín af atvinnulífinu er ekki lengri


Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

1. Keeping the faith
2. Nánast allar gamanmyndir með Jim Carey
3. Never been kissed
4. The sweetest thing
(Já ég veit, allt mjög djúpar myndir sem skilja mann eftir með hugann fullan af spurningum um lífið og tilveruna:haha:)


Fjórir staðir sem ég hef búið á:

1. Dalaland 12
2. Furugerði 11
3. Rauðagerði 8
4. Bjó nánast uppi í bústað á sumrin hérna í den


Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

1. Prison break
2. Desperate houswifes
3. O.C. og One Tree Hill
4. Neighbours

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar en hætt er að framleiða: (Já samdi þessa sjálf haha)

1. Friends (Að sjálfsögðu!)
2. Ally McBeal
3. Cheers
4. The Nanny (Hver man ekki eftir Fran, Niles, CC, Yetta, Sylvia, Maxwell og fleirum;) )
4. b) Home improvement (Tim the toolman Taylor og nágranninn George eða eitthvað sem sást aldrei almennilega í andlitið á. Og að sjálfsögðu hinn ekki svo ómyndarlegi Jonathan Taylor Thomas sem flestar stelpur slefuðu yfir fyrir jaa nokkrum árum)



Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

1. Spánn
2. Portúgal
3. Danmörk
4. Þýskaland


Fjórar bækur sem ég les oft:

1. Dís (Get lesið hana endalaust oft)
2. Harry Potter
3. Fannst Bert bækurnar mjög skemmtilegar þegar ég var yngri, er ekki viss um að mér fyndist þær jafn skemmtilegar í dag.
4. Birta (meira svona bæklingur en samt..)


Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna:

1. Í útilegu næsta sumar
2. Á Þjóðhátíð í Eyjum næsta sumar:haha:
3. Á suðrænni strönd með litríkan kokteil við hönd! (Svona rím er ekki á allra færi skal ég segja ykkur)
4.Í sumarbústað með skemmtilegum hópi af fólki

Svo kemur kanski alvöru bloggfærsla einhvern tímann...

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 01:09:57 / Hildur

Gleðilegt nýtt ár!

Já þá er bara komið nýtt ár og ég verð að segja það að ég hef mjög góða tilfinningu fyrir árinu 2006!:haha:

Gamlárskvöld var hið fínasta og byrjaði ég það bara heima í fjölskylduboði og fór svo um tvöleytið á Broadway með Únu. Þar var troðið af fólki og hittum við rooosalega marga. Allir í miklu stuði! Nýjársdagur var ekki jafn mikið stuð skal ég segja ykkur...:whut:

Í kvöld hélt Úna svo jólaboð fyrir nokkra útvalda, bauð upp á þriggja, eða eiginlega fjögurra, rétta máltíð.

Matseðillinn

Forréttur: Rjómalöguð sveppasúpa ala amma hennar

Aðalréttur: Hangikjöt með grænum baunum, uppstúfi, kartöflum og laufabrauði.

Eftiréttur: Frönsk súkkulaðikaka með rjóma og Tíramísú

Allt saman alveg gjöööeðveikt híhíh. Reyndar borðuðum við forréttinn á eftir aðalréttinum þar sem hann gleymdist í smá stund en það skipti nú ekki miklu máli;)

Á morgun byrjar svo bara skólinn aftur og það verður dálítið spes að þurfa að fara að vakna aftur á ókristilegum tíma eftir að hafa sofið til 12:20 síðustu tvær vikur (klukkan 12:20 byrja nefnilega nágrannar hahah)

Svo er gaman að minnast á það að í dag er ég akkurat 17 og hálfs árs gömul ( eða var það fyrir miðnætti, 3. janúar semsagt) sem þýðir að það er ekki nema hálft ár í 18 árin eins og glöggir lesendur ættu að átta sig á:haha:

kveð í bili, Hildur

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 16:19:03 / Hildur und Úna

Jól 2005

Gleðileg jól! :haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 17:08:19 / Úna

Jólin koma!

Jæja börnin mín þá er maður loksins vaknaður! 8)

Bömmer ársins... ég ætlaði að setja ógissla tælandi mynd af heitum fola í gjöveikre peysu með ógissla flottu golfmunstri eeeeen ég kann ekki að setja myndir á þetta glæsta blogg.
Strákar fáið ykkur peysur með golfmunstri!;)

Við Eydís erum hérna að dundast í vinnunni að bíða eftir Hildi sem bæ ðe veij á að vera mætt... :evil: og hlusta á Ésús Krist Súperstjörnu.

Hildur mætt bara 10 mín of sein met TÍNG TÍNG TÍNG!!

Eydís: FOKK KRISTMAS!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 14:29:39 / Hildur

Lítil jólaprófsaga

Fór í fyrsta prófið í dag, tölvupróf úr Word og Access. Held að ég hafi nú reddað þessu þó að tölvupróf séu alltaf dálítið risky vegna tímaskorts:$ Einmitt útaf þessum blessaða tímaskorti var ég náttúrulega síðust út úr stofunni þar sem ég var að reyna að redda mér eitthvað þarna í bláendann og rauk út úr stofunni og gleymdi öllu draslinu mínu inni svo að ég þurfti að spretta aftur inn í skóla þegar ég var komin út og láta opna inn í stofuna fyrir mér og svona vesen típískt ég:whut:

EN típíski ég hlutinn endaði sko ekki þarna með einhverjum svona smávandræðum. Neei þegar ég var komin fyrir utan heima og ætlaði að fara að taka saman dótið mitt sem lá í snyrtilegri hrúgu við hliðina á mér í farþegasætinu sé ég helvítis prófið mitt í bunkanum!!ég náttúrulega fríka og hleyp öskrandi inn til mömmu og segi henni frá óheppni minni. Hún gaf mér þau uppörvandi ráð að drífa mig með þetta niður í skóla og að ég þurfi örugglega að taka prófið aftur. Takk mamma:whut: Nú þannig að ég brunaði eins og vindurinn upp í skóla og bókstaflega hleyp inn í skóla og er svo heppin að hlaupa bara næstum því beint á Baldur Sveins tölvukennara. Vegna sálarástands míns á þessum tímapunkti man ég ekki alveg orðrétt hvað við sögðum en það var eitthvað á þessa leið.

Baldur: Sæl Hildur, hvernig gekk í prófinu?

Hildur: mm jaa bara svona sæmilega en hérna já sko ég gleymdi eiginlega að skila þessu (rétti honum prófið frekar skömmustulega):^)

Baldur: Já...þá færðu náttúrulega bara 0!!

Hildur: NEEEI! ertu að grínast (brotna algjörlega niður andlega)

Baldur: Nei þeir sem gleyma að skila prófum fá að sjálfsögðu bara núll!!

Hildur: (Gráti næst) Þú ert að grínast,þú ert að grínast plííííís vertu að grínast!!!

Baldur: Jájá þetta er allt í lagi. Gott að þú skilaðir þessu samt.
Hildur: (Greinilega ekki alveg búin að átta mig á því síðasta sem hann sagði) Sko ég sá þetta bara allt í einu í bílnum og.... bara sjitt og hljóp inn...og mamma bara..... taka prófið aftur....og þú bara NÚLL....sjitt!*svona örvæntingarsvipur eins og heimurinn sé að farast*

Baldur: Hildur....þetta er allt í lagi sagði ég róaðu þig bara og farðu heim læra fyrir næsta próf.

Hildur: ó...Vá þú ert vondur, ætlaru að láta mig fá hjartaáfall!!!

Já þannig var það nú hmm. Veit ekki alveg hvort að þessi saga skilaði sér almennilega til ykkar sem vitið ekki hver Baldur Sveins og hversu ógnvekjandi hann getur verið en það verður bara að hafa það. Bendi samt á að hann er fínasti kall þegar hann er ekki að skammast:)

Eftir prófskilafíaskóið fórum við Úna svo á KFC og fengum okkur "það sama og venjulega" eða semsagt Barbíkjú Zinger borgara tilboð til að róa taugarnar mínar:haha:Við erum farnar að fara svo oft þarna að þau eru nánast byrjuð að heilsa okkur með nafni enda erum við nú einir stærstu styrktaraðilar þeirra8|

Ég er hætt að borða fram að jólum!

p.s. Nema súkkulaðið úr dagatalinu mínu

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.10.2005 11:42:02 / Hildur

Laugardagur vetrarfrís

Jæja þá er vetrarfríið bara að verða hálfnað! Hvað er ég að gera til að fagna því? Jú ég sit bara hérna í rólegheitunum niðri í Expert að vinna:frown:

Gærkvöldið var bara rólegt sökum þess að flestallir eru að eyða vetrarfríinu  í sumarbústöðum vítt og breitt um landið, í öðrum landshlutum eða bara hreinlega í útlöndum.

Mig langaði til útlanda í vetrarfríinu!evil:

En semsagt, Ég og Elvar skelltum okkur bara í billjard í gærkvöldi. Við fórum á sportbarinn Sportarann í hafnarfirði og vorum þar í góðum félagsskap sótölvaðra, sönglaðra og kampakátra hafnfirðinga í aldurshópnum 70+. Mikil gleði þar á bæ og var lagið Fátt er svo með öllu illt að eiiiiiiiiiiii boði gott! klárlega lag kvöldsins:haha: Gömlu rúsínu(bókstaflega)kallarnir tóku það af þvílíkri innlifun trekk í trekk í gegnum kvöldið svo að ég varð bara klökk!

Gaman að sjá fólk á grafarbakkanum djamma eins og það sé enginn morgundagur!:D Sem gæti náttúrulega meira en vel verið satt í þeirra tilviki hahahah

ojjj ljótt djók! Skamm Hildur!!


» 13 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 16:41:01 / Úna

Vetrarfrí!

Halelúja!!
Á morgun er seinasti skóladagur fyrir vetrarfrí og þá liggur leið mín norður í land að skemmta mér eins og ég hef aldrei skemmt mér áður vúhú!:lol:

Verst að það virðast allir vera eitthvað geðvondir :frown: þessa dagana nema ég og betri helmingurinn, en við erum náttúrulega ofurhressar vegna komandi vetrarfrís. :haha:

Að sjálfsögðu gríp ég með mér myndavél og Karen frænka vonandi líka þar sem hún kíkir væntanlega líka á djamm í fríinu og svo ætlum við að fara að smella á þetta myndasíðu líka reyndar meira okkur til skemmtunar en ykkur en vonandi að þið hafið gaman að því líka :haha::haha:

Heyrumst ef ég kem heim á lífi!

Yfir og út

kv. Nína :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 00:14:58 / Hildur

Tær eða nafli?

Já lesandi góður nú er það spurning, hvort myndir þú vilja nudda berar tær á einhverjum eða pota í naflann á honum?


Þetta var umræðuefni kvöldsins hjá okkur vinkonunum,Hildi og Únu, og ræddum við þetta fram og aftur.:D Nú eru tær náttúrulega frekar óheillandi og bara hreint út sagt viðbjóðslegur líkamspartur/partar, fyrir utan mínar tæ auðvitað, en naflar geta líka verið doldið kuskí. jámm ég býst við að þetta sé bara smekksatriði.:Shahaha!


Já við Úna kíktum semsagt á rúntinn áðann, fórum til Deisý Speisý þar sem að Úna hertók hálfan fataskápinn hennar til að fara með til Akureyrar og tókst meira að segja að plata út úr henni nýju, rauðu, fallegu skóna hennar. hahaha!:P


Lentum svo í þvílíkum polli á sogaveginum, já eiginlega bara stöðuvatni skal ég segja ykkur! Ég hélt fyrst að bíllinn minn myndi drukkna og brettið detta af honum en nei good old Litli-Rauður stóð fyrir sínu og þeystist í gegnum vatnsflauminn eins og hvaða fjallajeppi sem er hefði getað verið stoltur af!:haha:


Svo ætlaði ég að kæla mig með makkflörrí með jarðaberjum og súkkulaði þannig að við fórum í lúguna á makkdónalds og ég pantaði mér eitt stykki. síðan þegar ég var búin að keyra alveg pörfekt upp að lúgunni mundi ég allt í einu eftir að það er ekki hægt að opna rúðuna bílstjóramegin á Litla-Rauð og ég var of nálægt til að geta opnað hurðina. hahahha og þarsem að úna harðneitaði að fara út og sækja ísinn varð ég að keyra áfram og bakka aftur og láta bílinn fyrir aftan mig bakka líka og eitthvað svaka vesen og makkdónalds"gellan" í kasti á meðan hahahah!

Kanski ekkert voða fyndið þegar því er lýst svona eftirá en trúið mér þetta var mjög fyndið á þessu mómenti!! :haha:


Þess má til gamans geta að það eru aðeins 290 dagar í Þjóðhátíð í Eyjum Vúhú!!:haha:




» 6 hafa sagt sína skoðun

15.10.2005 18:09:38 / Hildur

Jolly Saturday!!!

Já kanski eins gott að ég fari að blogga smá ef að ég vil ekki að hún Nína klessi á hann Litla-Rauð minn. Þessi elska má hreinlega ekki við því, alveg nóg að hann sé með laskað pústkerfi eftir að ég keyrði óvart yfir kant um daginn!
Ég vona að mamma og pabbi fari ekki að sjá neina tengingu á milli þess að ég fékk bílpróf og að bíllinn okkar er skyndilega við það að hrynja í sundur hahah

En í dag er semsagt Laugardagur og planið að djamma í kvöld þarsem að það er ekki vinna á morgun. Réttó-get-together-ið sem átti að vera í kvöld fór nú samt eitthvað forgörðum vegna þess að allt í einu voru allir uppteknir.

Þannig að ef þið vitið um eitthvað gott partý í kvöld þá megiði endilega hringja í Mig eða Únu!

Njótið helgarinnar!

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2005 09:15:38 / Úna

Karen!

Hildur ekki alveg að standa sig í þessu hérna.:whut:

Á sunnudaginn er 100 ára afmæli Verzlunarskóla Íslands :D
Jei, og í tilefni þess á að afhjúpa "gosbrunninn" fyrir framan sem er búið að vera að græja frá því skólinn byrjaði svo verða að sjálfsögðu ræður og kökur í dag :lol:

Gaman að segja frá því að í versló ó já bara í versló var haldin íþróttavika núna síðastliðna viku og skartaði hún meðal annars tískusýningu með berum strákum :$ og lagið "push me and than just touch me 'til I can get my satisfaction" var spilað undir á meðan þeir mörsuðu um berir að ofan á Marmaranum það var líka box í hádeginu í gær sem endaði á því að það þurfti að hringja á sjúkrabíl því annar boxarinn fékk heilahristing :$, augljóst að hann var sko enginn Darri! ;)

Í dag er ekki bara afmæli heldur líka flöskudagur og vonandi verður þessi helgi "æði æði æði" og mikið stuð og stemming!
Það stendur til að kannski vígja tvo nýja meðlimi í Kuntuklúbbinn og/eða bara fara með þær út að borða og á kuntudjamm í kvöld. :haha:
Annað kvöld er svo dinnerpartý með Réttókrúinu sem verður án efa magnað :haha:

Ef einhvern langar að fá okkur til að halda uppi stuðinu einhversstaðar um helgina er það bara að bjalla í okkur, ef þú veist ekki símann viljum við sennilega ekki tala við þig hvort eð er nema þú sért annar hvor kærastinn okkar farðu þá bara á netið og flettu okkur upp eða komdu og syngdu Brúðarmarsinn fyrir okkur. :haha:;)

"Karen, Karen þér heiti ég því...." að klessa á bílinn þinn ef þú ferð ekki að blogga bráðum!


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2005 13:17:26 / Úna

Úps

Jæja jæja nú er loksins hægt að fara að lífga upp á þetta blogg :lol:

Hildur frænka aka. Karen er loksins komin með netið og nú getum við farið að blogga alveg hægri vinstri upp og niður og á ská.
Margt hefur á daga okkar drifið frá því afmælin okkar voru og hétu hérna í sumar og þess á meðal eru bílprófin okkar, þónokkur djömm, skólinn byrjaði:cry:, við fórum að leggja í langferðir á kvöldi hverju í önnur bæjarfélög í fjársóðsleitir, týna krækiber í tonnatali og þess má einnig geta að við skelltum okkur í Sumó um daginn þar sem Elvar dansaði fáklæddur, Kristján reytti af sér gullkornin eins og ; "Ha er barnalæsing á þessu?" þegar hann ætlaði að opna vodkaflöskuna og það var svona skammtari í stútnum :lol: Tóta dó og var krotuð og við stúlkurnar tókum hvert lagið á fætur öðru þríraddað í pottinum undir stjörnunum. :haha:

Lýsandi fyrir Sumó:
Tekíla
Nekt
Hrotur
Vondur koteill
Melóna
Meiri nekt
Rjómi
Ávextir og ber
Stjörnur
Ég hef aldrei...

En hér með skora ég á Hildi félaga minn í blíðu og stríðu að fara að blogga eins og vitleysingur hérna :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2005 22:43:48 / Hildur

Ég á afmæli,afmæli,afmæli!!!

Vúhú ég á afmæli í dag og er komin með bílpróf Jibbíjibbíjibbí:haha:

Þannig að ef að ef þið sjáið skínandi rauða toyotu starlet þeysast um göturnar þá er ég væntanlega þar á ferð:haha:8)o

Annars er sumarið bara búið að vera ljúft fram að þessu. Ég,Úna og Kristján skelltum okkur t.d. til Mývatns um seinustu helgi í útilegu sem var bara geðveikt gaman. Við tjölduðum í einhverju rjóðri sem að eru eiginlega alltaf partý í og helgin núna var engin undantekning:D Fórum líka á laugardagskvöldinu á bar þarna og hlustuðum á Ragnheiði Gröndal sem var mjög gaman og það var troðfullt á barnum;)

Ég og Úna héldum svo upp á afmælin okkar í gær í svona kósý vinapartýi sem var bara mjög skemmtilegt. Við skelltum í okkur Djellósjottum og skáluðum í bleiku kampó ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2005 16:50:26 / Hildur

Gleðilegt sumar, gleðilegt sumar

GLEÐILEGT SUMAR KRAKKAR MÍNIR!!!:haha::haha::haha::haha:

Já já já í dag kláruðust loksins blessuð prófin sem að gengu bara svona upp og ofan, vona að ég hafi náð öllu8| Í tilefni af því að sumarið er loksins komið héldum Ég, Úna, Áslaug, Elvar og Kristján pylsu og pottapartý í garðinum hjá Únu.

Svo fórum Ég, Úna og Elvar og hoppuðum eins og kreysílingar á nýja trampolíninu í garðinum hjá Únu og Ég slapp ótrúlegt en satt algjörlega ómeidd frá því þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Elvars og Únu til skjóta mér upp í loftið. Úna hinsvegar tognaði hohoh :klikk::haha:

Í kvöld er svo lokaball/sveitaball í skíðaskálanum í Hveradölum sem verður pottþétt brjálað stuð!! 8)

Sumarkokkteilsútilegugleðikveðja Hilla Magga Hjalt:haha::haha::haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2005 16:23:18 / Hildur und Úna

Summertime

GLEÐILEGT SUMAR! :haha::haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4